Skipstjóri í afleysingum.....Dedda

Skipstjóri í afleysingum.....

Hann var í fríi og lá í landi
að leysa af heima var enginn vandi,
konan var að því komin að fæða
og hvergi um húshjálp að ræða.

En hvað munar karlmann um kerlingarstörfin
þó kannski sé stundum fyrir þau þörfin?
Konan var heima og hafði engu að sinna
nema hugsa um krakka,það er ekki vinna.

Hún sagði:Elskan þú þarft ekkert að gera,
aðeins hjá börnunum heima að vera,
ég er búin að öllu,þvo og þjóna,
þú þarft ekki að bæta ,sauma eða prjóna.

Matur er útbúin allur í kistunni,
það ætti að duga svona í fyrstuni,
aðeins að líta eftir öngunum átta,
ylja upp matinn og láta þau hátta.

Nú skyldi hann hafa það náðugt og lesa
og ná sér í ærlegan skemmtipésa,
hann var ekki sestur og var nokkuð hissa
er vældi í krakka:mér þarf að pissa.
Vart þeirri athöfn var að ljúka
er veinaði annar :Ég þarf að kúka.

Þarna var engin einasti friður
ef ætlaði hann að tylla sér niður,
Dagurinn leið svo í sífelldum önnum
sem ei voru bjóðandi mönnum,
þvílíkt og annað eins aldrei í lífinu
útstaðið hafði hann í veraldarkífinu.

Ölduna stíga í ósjó og brælu
var ekkert hjá þessu,það kallaði hann sælu,
en þeytast um kófsveittur skammtandi og skeinandi
skiljandi áflogaseggina veinandi!

Ef eitt þurfti að éta varð annað að skíta
og engin friður í bók að líta,
en hún sagði"Elskan.þú þarft ekkert að gera
aðeins hjá börnunum heima að vera"

Nú voru krakkarnir komnir í rúmið,
Kyrrlátt og sefandi vornætur húmið
seiddi í draumheimana angana átta
en ekki var pabbi farin að hátta.
Hann stóð þarna úfin úrvinda og sveittur
yfir sig stressaður, svangur og þreyttur,
og horfði yfir stofuna:"hamingjan sanna
hér á að teljast bústaður manna.

"Það skyldi hann aldrei á ævinni gera
í afleysingu slíkri sem þessari vera,
þó væri í boði og á því væri raunin
að þau væru tvöfölduð skipstjóralaunin.

En þetta á konan kauplaust að vinna
og kallað að hún hafi engu að sinna
af daglangri reynslu hans virtist það vera
að væri stundum eitthvað að gera.

Áfram með störfin ótt líður tíminn
Æ" aldrei friður nú hringir síminn,
halló, var sagt, það er sætt ég túlka,
þér er sonur fæddur og yndisleg stúlka.

Hann settist á stól og fann til svima og klígju,
hvað sagði hún að krakkarnir væru orðnir tíu,"
Ég þarf að taka til öruggra varna,
ég ákveð á stundinni að hætta að barna,

Hahahaha, vantar ykkur mann?Dedda

Fékk símtal og verið var að bjóða mér einhverjar rásir á sjónvarpið. Roslaega skemmtileg sölumanneskja sem lenti á smá spjalli og símtalið endaði á þessum orðum:

"Ég get allavega lofað þér ef þú færð þér Sýn núna verður þú komin með karl ekki seinna en eftir helgi"



Ættli hann fylgi áskriftinni?

Er þetta hægt?Dedda

Ég ætlaði að vera voða klár áðan og sprauta mig með getnaðarvarnasprautunni ....bara eins og ég er vön að gera.....

Ekki nema, ég er náttúrulega hölt og skökk og þegar ég var í þann mund að munda nálinni í rassgatið á mér missti ég mátt í fætinum fipaðist til og stakk nálinni á bólakaf í puttann á mérGráta

Ég skipti um nál og gerði aðra tilraun sem gekk upp, nema hvað að það blæðir alveg svakalega úr rassinum á mér......og puttanumFýldur

Spurning um að láta hjúkrunarfræðing um þetta næst.

ÞAÐ ER FÖSTUDAGUR JE JE JEDedda

Jibbí það er kominn enn einn föstudagurinn,bara elska föstudaga get ekkert gert afþví.Hvað skal segja um daginn í dag,hann byrjaði á vinnu og svo fór kellann bara í klippingu.Mæja skammaði mig svo í gær að ég þorði ekki annað en að láta klippa mig,svo verð ég víst að plokka þessar helv augnabrýr líka.Bjútí is pain.En þetta er bara fínasta klipping að ég held (er ekki nægilega dömuleg í hugsun og aðgerðum)myndi örugglega mæta bara loðinn á öllum stöðum ef að ég mætti ráða.En sem betur fer er fólk í kringum mann sem siðar mann til.Ætli það verði ekki líka ætlast til þess að maður raki lappirnar,þvílíkt vesen að vera kella ekki satt.Jæja þetta er nóg um hár,Mæja og Ragga komu með föt og skó á kelluna í dag þessar elsur.Ef þær hefðu ekki komið þá hefði ég farið berfætt og berrössuð á ball(ekki falleg til hugsun).Svo var Linda líka búinn að bjóða mér að fá hjá henni föt,það er sko gott að það hugsi allir svona vel um mann.Var að fatta að ég á enginn föt sjálf,kaupi aldrei svoleiðis dótnema bara gallabuxur elska gallabuxur.Sveitamaður segja sumir veit ekki en það er ekki svo slæmt að vera það.Það er nú toppurinn.Alex fór á ball á Bíldó og ætlar svo að eyða helginni í sveitinni,held að Víðir og Mæja ættu að ættleiða hana ,hún er orðinn hesta sjúk.Veit ekki hvað ég get bullað meira í dag læt þetta duga í bili.

Líkið í garðinum mínumDedda

Ég var að laga kaffi og hafa það kósý þegar mér varð litið út um eldhúsgluggann minn og sé að það liggur maður í garðinum hjá mér, pappaspjald yfir hausnum á honum, einhver jakki yfir honum og alveg hreyfingarlaus.
Ég sá fyrir mér fyrirsagnirnar "Lík í garði" og "Morð á Akureyri" og ákvað að hlaupa út að tjékka á þessu ..
Ég stóð yfir líkinu og sagði "halló .. ertu dauður?" en fékk ekkert svar, ég potaði í líkið með tánum og kallaði aftur .. en ekkert svar og engin hreyfing.
Þá tók ég á mig rögg og ákvað að lyfta spjaldinu af hausnum á manninum.

Blasti þar við mér alveg hlandþunnur djammari sem horfði á mig eins og ég væri geimvera, ég tjáði honum að djammið væri búið, klukkan væri orðin 12 og kominn tími til að vakna.

Líkið semsagt lifnaði við og labbaði heim á leið.

Ég skora á þigDedda

lesandi góður að fara á kjörstað og nýta atkvæðisrétt þinn.

Það eru innan við 100 ár síðan íslenskar konur fengu kosningarétt. Rétturinn til að kjósa er einhver mikilvægasti réttur í lýðræðisríki.

Ef þú ert ekki viss lestu þér á til um menn og málefni, mörg framboð halda úti vefsíðum. Farðu á kosningaskrifstofu og fáðu frekar upplýsingar. Ræddu við vini og vandamenn sem hafa kannski kynnt sér málin meira en þú. En láttu vita að þú ætlir að ákveða fyrir þig hvað þú vilt kjósa.

Ertu ánægð með það sem núverandi meirihluti hefur gert eða viltu breytingar.


Ef ekkert af þeim framboðum sem í boði eru höfðar til þín þá áttu alltaf þann möguleika að skila auðu. Þú hefur allavega mætt á kjörstað og nýtt þinn rétt.

Þetta er búiðDedda

Jamm nú er júródæmið okkar íslendinga búið... sem betur fer... og mitt mat : Hún var ÖMURLEG...... og persónulega þá var mér slétt sama hvernig þetta færi.... hún var komin langt út fyrir eðlileg mörk stelpu rófan.... :o/ nóg um það....

Jæja hvað á ég að bulla í ykkur.......... hmmmmm veit ekki... æ nenni ekki....

Hilsen

bleiki fíllinn að meika þaðDedda

druslur í kjötborði hátísku og ómenningar
skorið og smurt fyrir toyotueigendur og breezerþambandi fávita
sem dansa í blóði fátækra

hangand´ í slipp dauðans
hangand´í hversdagsleika júró fuckin nördans
hangandi´í mömmu sinni vælandi um silicon og dildó
hey þjóð vaknaðu
ég er hér, æðaber
ready for kók
og smók

Fáránlegt - leitin að týnda drengnumDedda

Alveg er með ólíkindum að það verði að kalla til danska þyrlu af varðskipi til að leita að týndum manneskjum hér á landi.

Báðar gæsluþyrlunar bilaðar og varnarliðið vildi ekki lána þyrlu ... ætli það sé fýla í gangi?

Og nú er varnarliðið á leiðinni burt og hvað þá, eigum við að hringja í dani í hvert sinn sem einhver týnist hérna?
Mér finnst þetta alveg merkilegt af sjálfstæðri þjóð að geta ekki haft þyrlurnar í gangi, ótrúlegt eiginlega.

Frelsisþrá brjóstaDedda

Ég er ein heima, sem væri ekki í frásögufærandi nema af þeirri ástæðu að þá hef ég sem sið að panta mér pítsu. Hér á mínu heimili höfum við alltaf tekið ágætlega á móti þessum sendlunum, sem færa okkur björg í bú, en ég er þó ansi hrædd um að vingjarnlegheitin hafi stigið út í öfgar í þetta sinn:
Þannig er mál með vexti að ég bún að hafa það kósý í dag (enda bara ein heima). Er því hámygluð og af einhverjum ástæðum brjóstahaldaralaus í hlírabol (sem ég er annars aldrei, þeas brjóstahaldaralaus). Ég var búin að hugsa fyrir því að smeygja mér í peysu þegar sendillinn hringdi dyrabjöllunni, svo ég kæmi ekki nakin til dyra, en þegar stundin rann upp gleymdist það... og óð ég í fyrrnefndum hlírabol til dyra.
Fyrst var allt í lagi: Ég tók við pítsunni og bar inn í sjónvarpshol þar sem hún skyldi borðuð. Það var ekki fyrr en ég fór að leita peninga í veskinu mínu sem ósköpin dundu yfir. Óbeisluð, í fyrrnefndum hlírabol, og þrátt fyrir að þau séu ekki þeirrar stærðargráðu að það þurfi að reyra þau niður til hlíðni á venjulegum degi, þá eru þau heldur ekki svo agnarsmá að þau vilji ekki brosa framan í heiminn. Ojújú, þið gátuð rétt: Hægra brjóstið (sem betur fer það flottara) smeygði sér hljóðlega fram hjá öllum öryggisráðstöfunum... sem þó voru til skammar.
Ég tók ekki eftir neinu.
Ég labbaði að dyrunum, með aðra júlluna skríkjandi af frelsisgleði, og fór að pæla í því af hverju sendillinn horfði svona einkennilega á mig. "Fæðingarhálfviti" - hugsaði ég af minni alkunnu prófageðvonsku og rétti honum peninginn.
Við hlið útidyranna er spegill og í speglinum stóð ég augliti til auglitis við glottandi hægra-brjóst.
Ég vænti þess að héðan í frá verði slegist um að sendlast með pítsur á þetta heimili.

Auglýsing

Klukkan